ACENDIO
eru Evrópsk samtök um þróun sameiginlegs
fagmáls hjúkrunarfræðinga í Evrópu,
fagmáls sem inniheldur hjúkrunargreiningar, hjúkrunarmeðferðir,
og árangursmælingar fyrir hjúkrun.
ACENDIO
eða, "The Association for Common European Nursing Diagnoses,
Interventions and Outcomes" eru félagssamtök sem stofnuð
voru árið 1995 til þess að stuðla að þróun
á fagmáli hjúkrunar og mynda evrópskt samskiptanet
hjúkrunarfræðinga sem hafa áhuga á þróun
fagmáls sem lýsir hjúkrun.
Hjúkrunarfræðingar
um alla Evrópu þurfa sameiginlegt fagmál til að
geta miðlað sín á milli og borið saman upplýsingar
um hjúkrun, til þess að geta rannsakað og bætt
hjúkrunarþjónustu og til að geta lýst
stjórnun hjúkrunar. Sameiginlegt fagmál hjúkrunar
er nauðsynlegt til að tryggja að hjúkrun verði
sýnileg í heilbrigðisþjónustu, og hjúkrunarupplýsingar
verði hafðar til hliðsjónar þegar teknar eru
stefnumótandi ákvarðanir um heilbrigðisþjónustu
á hverri stofnun, í hverju landi og síðast
en ekki síst þegar mörkuð er stefna hjúkrunar
á evrópskum vettvangi.
Til að
svo megi verða, þurfa hjúkrunarfræðingar
að geta lýst á eigin fagmáli hvað það
er sem hjúkrunarfræðingar gera fyrir sjúklinga
sína og skjólstæðinga, hversvegna þeir
gera það og hver er árangur starfsins. Hjúkrunarfræðingar
verða einnig að geta lýst starfi sínu fyrir öðrum
og borið saman verkefni hjúkrunarfræðinga með
notkun sameiginlegs, staðlaðs orðasafns (fagmáls)
sem tryggir gildan samanburð á viðfangsefnum hjúkrunar
á mismunandi stöðum og í mismunandi löndum.
Fagmál
hjúkrunar þarf því að geyma safn orða
og hugtaka sem endurspegla fjölbreytt verkefni einstaklingshæfðrar
hjúkrunar eins og hún er stunduð um alla Evrópu.
Þróun fagmáls í hjúkrun snýst
þannig ekki um að staðla hjúkrunarþjónustu,
heldur um að staðla þau orð og þau hugtök
sem við notum til að lýsa þeirri hjúkrunarþjónustu
sem við veitum
Í
nokkrum löndum Evrópu hafa hjúkrunarfræðingar
hafið þróun fagmáls til að mæta þörfum
hjúkrunarfræðinga í viðkomandi landi. Í
öðrum löndum Evrópu hafa hjúkrunarfræðingar
þýtt og staðfært erlend fagmál hjúkrunar
eða jafnvel fagmál annarra heilbrigðisstétta og
aðlagað þörfum hjúkrunarfræðinga
í viðkomandi landi. Lítið samræmi er í
þróun þessar mála í hinum ýmsu
löndum Evrópu.
Alþjóðleg
flokkunarkerfi bjóða upp á ýmsa kosti fyrir
hjúkrunarfræðinga. Þannig styðjast hjúkrunarfræðingar
í nokkrum löndum Evrópu við "The International
Classification of Impairments, Activities and Participation (ICIDH)
sem þróað hefur verið af Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni
(WHO). Alþjóðaráð hjúkrunarfræðinga
hefur hafið þróun á alþjóðlegu
fagmáli og flokkunarkerfi hjúkrunar, eða ICNP (the
International Classification of Nursing Practice).
ACENDIO
styður þróun sameiginlegs fagmáls hjúkrunar
m.a. á eftirfarandi hátt:
- Með
ráðstefnum, útgáfustarfsemi og fyrirlestrahaldi
til að auka þekkingu og stuðla að þróun
fagmáls hjúkrunar í Evrópu.
- Samtökin
mynda samskiptanet evrópskra hjúkrunarfræðinga
svo þeir geti miðlað sín á milli og til
annarra, þekkingu og fréttum af þróun í
málefnum staðlaðs og samræmds fagmáls
hjúkrunar.
- Með
heimildasafni og dæmum um aðferðir til að þróa
og meta orðasöfn og flokkunarkerfi í hjúkrun.
- Með
mati og túlkun á alþjóðlegum stöðlum
fyrir orðasöfn og flokkunarkerfi.